Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilefnislausa líkamsárás á mann á götu í miðbæ Akureyrar í september á síðasta ári. Sá sem fyrir árásinni varð kjálkabrotnaði og tönn losnaði.
Árásarmaðurinn var einnig dæmdur til að greiða hinum manninum 532 þúsund krónur í bætur.
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi einnig mann í mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás en sá sló annan mann þrjú högg í andlitið á plani utan við leigubílastöð á Akureyri í apríl. Árásarmaðurinn var einnig dæmdur til að greiða manninum sem hann sló 121 þúsund krónur í bætur.