Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo fanga á Litla-Hrauni í sekt fyrir að vera með fíkniefni í klefum sínum. Annar maðurinn var dæmdur í 450 þúsund króna sekt fyrir að vera með 1,58 grömm af kókaíni og 44 skammta af LSD í klefa sínum en hinn var dæmdur í 50 þúsund króna sekt fyrir að vera með 0,13 grömm af hassi.
Fram kemur, að sá sem þyngri dóminn hlaut afplánar nú 16 ára fangelsi fyrir manndráp.