Hliði á sumarbústaðalandi stolið

Sumarbústaðaeigandi í Grímsnesi kærði í síðustu viku þjófnað á hliði sem var á vegi að nokkrum sumarbústöðum. Að sögn lögreglunnar í Árnessýslu grunaði kærandi nágranna sinn um þjófnaðinn en þeir höfðu átt í deilum um það hvort hliðið ætti að vera uppi eða ekki.

Lögreglan á Selfossi segist æ oftar fá til meðferðar ýmis klögumál á milli aðila í frístundahúsabyggðum eins og til dæmis aðgengi að húsum. Sum þeirra mála hafi endað hjá dómstólum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert