Veðurstofan varar við stormi suðvestantil á landinu nú síðdegis og einnig við mikilli rigningu á suðausturlandi í kvöld. Í veðurspánni er gert ráð fyrir suðaustanátt, víða 18-23 metrar á sekúndu suðvestanlands síðdegis en heldur hægari annars staðar.