Lögreglu í Vestmannaeyjum var að kvöldi sunnudags tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi í bænum. Að sögn lögreglu mun árásin hafa átt sér stað að morgni sama dags en talið er að kona á fertugsaldri hafi verið slegin í höfuðið með gleröskubakka með þeim afleiðingum að hún höfuðkúpubrotnaði.
Lögreglan segir, að konan hafi leitað til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja á sunnudagskvöld og var í framhaldi af því lögð þar inn. Hún var hins vegar ekki talin hættulega slösuð og er komin heim af sjúkrahúsinu.
Sá, sem grunaður er um árásina var handtekinn skömmu síðar á veitingastað í bænum og var í haldi lögreglu fram á mánudag. Um er að ræða karlmann á fertugsaldri og var hann látinn laus að skýrslutöku lokinni.
Að sögn lögreglu er framburður fólksins um atburði mjög óljós og hafi konan ekki enn viljað leggja fram formlega kæru. Lögregla rannsakar samt sem áður málið áfram þar sem um beinbrot er að ræða.