Talsvert magn fíkniefna fannst við húsleit

Talsvert magn fíkniefna fannst við húsleit í fjölbýlishúsi í Breiðholti um miðjan dag í gær en talið er að um sé að ræða amfetamín, hass, LSD og kannabis, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrennt var handtekið vegna rannsóknar málsins, kona á fertugsaldri og tveir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fimmtugsaldri. Yfirheyrslur standa enn yfir.

Þegar lögreglan kom á vettvang var konan í íbúðinni ásamt ungri dóttur sinni og var barnaverndaryfirvöldum því gert viðvart. Móðirin var í annarlegu ástandi og með ætluð fíkniefni á sér. Þegar aðgerðir lögreglu voru hafnar komu karlmennirnir að íbúðinni. Sá yngri reyndi að losa sig við ætluð fíkniefni á stigagangi hússins og kom til átaka við hann en maðurinn lét mjög ófriðlega. Þurfti að beita varnarúða og kylfu til að hemja hann.

Lögreglan segir, að við húsleitina hafi verið notast við sérþjálfaðan lögregluhund og hafi hann komið að mjög góðum notum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert