Bændur í Árnessýslu búast við flóðum vegna gríðarlegrar úrkomu

Mikil flóð urðu í ám í uppsveitum Árnessýslu fyrir tæpu …
Mikil flóð urðu í ám í uppsveitum Árnessýslu fyrir tæpu ári. mbl.is/Sigurður

Gífurleg úrkoma hefur verið á Suðurlandi að undanförnu og telja íbúar í uppsveitum Árnessýslu einsýnt að ár þar flæði yfir bakka sína en allir skurðir eru þegar orðnir fullir og vatn er að safnast upp við ármótin þar sem Stóra-Laxá, Litla-Laxá og Tungufljót renna í Hvítá. Í desember á síðasta ári varð mikið flóð á þessum slóðum, einnig vegna mikillar úrkomu.

Íris Brynja Georgsdóttir, bóndi í Auðsholti sagði við mbl.is, að þau hjónin væru að undirbúa að reka búfénað úr mýrunum vegna þess að einsýnt sé að þær fari brátt undir vatn. Hún sagðist reikna með því, að afleggjarinn heim að bænum yrði brátt ófær venjulegum fólksbílum.

Í flóðunum í desember í fyrra fór um 95% af 200 hektara landi Auðsholts undir vatn.

Að sögn heimamanna hefur verið mikil úrkomutíð að undanförnu og síðasta sólarhring hefur rignt stanslaust. Hvítá er orðin foráttumikil og byrjað er að flæða inn á mýrarnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka