Fjárflutningabifreið valt skammt frá afleggjaranum við Arnarstaði á Snæfellsnesi nú rétt fyrir kl. 15. Um 300 kindur eru sagðar vera í flutningabílnum. Lögregla er á vettvangi og segir hún ljóst að margar kindur hafi kafnað og drepist í flutningabílnum, en hann valt á hliðina og skemmdist þegar vegkantur gaf sig. Ökumann sakaði ekki.