Hálka á flestum leiðum

Hálka er á Hell­is­heiði og í Þrengsl­um, hálku­blett­ir eru á Sand­skeiði. Á Suður­landi eru hálku­blett­ir á flest­um leiðum.

Á Vest­ur­landi eru hálku­blett­ir í á flest­um leiðum og hálka á Holta­vörðuheiði og á Bröttu­brekku. Snjóþekja er á vest­an­verður Snæ­fellsnesi.

Á Vest­fjörðum er snjóþekja á flest­um fjall­veg­ur og stend­ur mokst­ur yfir á helstu leiðum. Hálku­blett­ir eru í Ísa­fjarðar­djúpi og hálka á Eyr­ar­fjalli. Þung­fært er á Þorska­fjarðar- Hrafns­eyr­ar- og Dynj­and­is­heiði.

Á Norður­landi er hálka á Öxna­dals­heiði, Vatns­skarði og Þver­ár­fjalli. Snjóþekja og élja­gang­ur er víða á Norðvest­ur­landi, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Vega­gerðinni.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert