EM í skák: Jafntefli við Sviss

Frá viðureign Íslendinga og Svisslendinga í dag.
Frá viðureign Íslendinga og Svisslendinga í dag.

Íslenska landsliðið í skák gerði jafntefli við Svisslendinga í 4. umferð Evrópumóts landsliða í skák á Krít. Íslenska liðið, sem er í 31. sæti á mótinu, mætir Svartfjallalandi í 5. umferð á morgun.

Hannes Hlífar Stefánsson tapaði fyrir Yannick Pelletier á 1. borði, Henrik Danielsson vann Claude Landenbergue á 2. borði en Stefán Kristjánsson og Héðinn Steingrímsson gerðu jafntefli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert