Hæstiréttur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í 8 mánaða fangelsi, þar af 5 mánuði skilorðsbundið, fyrir kynferðisbrot með því að bera kynfæri sín fyrir börnum og fróa sér að þeim viðstöddum. Þetta gerðist á bílastæði við Breiðholtsskóla í janúar sl.
Hæstiréttur staðfesti einnig dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að maðurinn greiði börnunum bætur frá 75-200 þúsund króna. Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi þegar greitt þessar bætur.