Unnið verði að markvissri endurhæfingu fanga á Litla-Hrauni

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Fangelsið á Litla-Hrauni. mbl.is/Rax

Nefnd, sem fjallað hefur um framtíðarrekstur fangelsisins að Litla-Hrauni, leggur m.a. til að stjórnskipulag fangelsisins verði endurskipulagt, aukin áhersla verði lögð á öryggisþáttinn í starfsemi þess, skýr starfsmannastefna verði mótuð og unnið að markvissri endurhæfingu þeirra fanga sem vistaðir eru á Litla-Hrauni.

Þá telur nefndin mikilvægt að kvenfangar eigi möguleika á því að afplána refsivist í sérstöku kvennafangelsi.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, skipaði nefndina í október 2006 til að leggja fram tillögur um framtíðarrekstur fangelsisins að Litla-Hrauni. Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, stýrði störfum nefndarinnar sem sett var á laggirnar að tillögu Valtýs Sigurðssonar, forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins.

Nefndinni var sérstaklega ætlað að kanna eftirfarandi atriði: öryggismál í fangelsinu, öryggi og starfsaðstöðu fyrir kvenfanga, atvinnu fanga, hlutverk fangavarða miðað við að teknar yrðu upp þrískiptar vaktir og leiðir til að sporna gegn fíkniefnaneyslu innan veggja fangelsisins. Í störfum sínum leitaði nefndin eftir sjónarmiðum starfsmanna fangelsisins, fanga og allra þeirra sérfræðinga sem koma að starfi Litla-Hrauns.

Í apríl á þessu ári skilaði nefndin áfangaskýrslu til dómsmálaráðherra og forstjóra Fangelsismálastofnunar þar sem lögð var áhersla á að gerðar yrðu breytingar á frumteikningum að fyrirhuguðu móttökuhúsi á Litla-Hrauni. Nefndin fagnar því að í fyrirliggjandi teikningum nú er að fullu tekið tillit til tillagna nefndarinnar.

Í nefndinni áttu sæti auk Margrétar Frímannsdóttur, Margrét Sæmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Fangelsismálastofnun, Sigurjón Birgisson, formaður Fangavarðafélags Íslands, og Anna Sigríður Arnardóttir, þá starfandi lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Í júlí 2007 tók Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í ráðuneytinu, sæti Önnu Sigríðar. Starfsmaður nefndarinnar var Marta Margrét Ö. Rúnarsdóttir laganemi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert