Ekki gerð athugasemd við samstarf RÚV og Árvakurs

Morgunblaðshúsin í Hádegismóum
Morgunblaðshúsin í Hádegismóum mbl.is/ÞÖK

Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við samstarfssamning Ríkisútvarpsins og Árvakurs við Capacent Gallup um gerð og birtingu vikulegra skoðanakannana á fylgi stjórnmálaflokkanna í aðdraganda alþingiskosninganna.

Þann 20. apríl 2007, barst Samkeppniseftirlitinu erindi þar sem 365 hf. (365) kvartaði yfir samningi sem Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) og Árvakur hf. gerðu við Capacent Gallup um gerð og birtingu vikulegra skoðanakannana á fylgi stjórnmálaflokkanna í aðdraganda alþingiskosninganna.

365 taldi að umræddur samningur stæðist hvorki ákvæði samkeppnislaga né ákvæði laga um Ríkisútvarpið ohf.

Að mati Samkeppniseftirlitsins fellur samningurinn um gerð og birtingu umræddra fylgiskannanna innan hins rúma almannaþjónustuhlutverks RÚV. Þá er ekki talið að samstarf RÚV við Árvakur í þessu tilviki fari gegn samkeppnislögum. Ekki eru því taldar forsendur til íhlutunar Samkeppniseftirlitsins vegna málsins.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert