Nú um helgina munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fara af stað með fjáröflun um allt land sem kallast “Neyðarkall frá björgunarsveitum”. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun hefja átakið formlega í Smáralind í Kópavogi klukkan 17:00 í dag.
Hagnaður af söfnuninni mun renna til björgunarsveita, slysavarnadeilda og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður hann notaður til að efla og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins.