Dilkar hálfu kílói léttari

Sauðfjár­slátr­um hjá Kaup­fé­lagi Skag­f­irðinga á Sauðár­króki lauk um mánaðamót og hafði þá staðið sam­fellt yfir í tvo mánuði. Alls var lógað 105.168 kind­um. Það er nán­ast sami fjöldi og slátrað var árið á und­an.

Meðal­fallþungi dilka í ár var 15,25 kíló en var 15,73 árið á und­an. Þá voru dilk­ar reynd­ar með vænsta móti.

Slátrun gekk vel og var dagslátrun iðulega um og yfir 3.000 kind­ur. Um 85 út­lend­ing­ar störfuðu við slátr­un­ina í haust og héldu þeir flest­ir til síns heima um síðustu helgi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert