Í dag var undirritaður rekstrar- og samstarfssamningur milli Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs í nýju húsnæði leikfélagsins að Funalind 2 í Kópavogi. Um leið tók LK, sem varð 50 ára á árinu, formlega við húsnæðinu. Um er að ræða fyrsta eiginlega leikhúsið í Kópavogi, þ.e. hús sem er ætlað fyrst og fremst til leiksýninga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Undir samninginn rituðu Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gísli Björn Heimisson, formaður LK. Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs í Kópavogi, óskaði LK og bæjarbúum til hamingju með tímamótin.
Félagar í LK sýndu atriði við undirritunina og unglingadeildin framdi táknrænan gerning þegar tekið var við húsinu. Hönnunarvinnu er að mestu lokið og er stefnt að því að ljúka breytingum á húsinu svo að það henti leikhúsi fyrir áramót.