Komið var að illa slösuðu hrossi á Borgarfjarðarbraut við Bæjarsveitarveg um kl. átta í morgun. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi er ekki vitað hvort ekið hafi verið á hrossið eða það dottið af bíl, en ljóst er að hrossið er mikið slasað. Málið er í rannsókn.