Nefnd sem forsætisráðherra skipaði 17. júní sl. til að undirbúa hvernig minnast eigi þess að 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta hefur tekið til starfa.
Fram kemur á vef forsætisráðuneytisins að nefndin sé skipuð fulltrúum þeirra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Að auki sitja í nefndinni fulltrúar Alþingis og Hrafnseyrarnefndar. Formaður nefndarinnar er Sólveig Pétursdóttir fv. forseti Alþingis.
Nefndinni er ætlað að gera fyrstu tillögur til forsætisráðherra eigi síðar en í árslok 2008 en vinna síðan að undirbúningi hátíðarhalda á árinu 2011. Nefndin mun enn fremur leita eftir tillögum frá stofnunum og samtökum sem tengjast minningu Jóns Sigurðssonar forseta