Líkamsárás í sumarbústað

Að sögn lögreglunnar á Selfossi var ráðist á mann í sumarbústað um kl. þrjú í nótt. Sá sem varð fyrir árásinni hlaut höfuðhögg með þeim afleiðingum að flytja þurfti hann á slysadeild í Reykjavík. Ekki liggur fyrir með meiðsl mannsins en að sögn lögreglu þá var hann með meðvitund en talsvert ringlaður eftir höggið. Árásarmaðurinn var handtekinn og gistir hann nú fangageymslur.

Lögreglan segir að fjöldi vitna hafi verið að árásinni en ekki liggi fyrir hvort sá sem varð fyrir árásinni muni kæra. Ef meiðsli mannsins eru alvarleg getur lögreglan sjálf lagt fram kæru gegn árásarmanninum geri brotaþolinn það ekki.

Í dag verður skýrsla tekin af árásarmanninum og rætt við vitni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert