Áður óþekkt hverabaktería finnst á Íslandi

Unnið að rannsóknum á hverabakteríum.
Unnið að rannsóknum á hverabakteríum.

Matís hefur fundið áður óþekkta hverabakteríu, sem virðist bundin við Ísland. Tegundin fannst í háu hlutfalli í hver á Torfajökulssvæðinu og hefur nú tekist að rækta hana.

Fram kemur á heimasíðu Matís, að ýmsar rannsóknir hafi verið gerðar á hverabakteríum á vegum Prokaria, líftæknisviði Matís. Nútímaaðferðir geri vísindafólki kleift að greina tegundasamsetningu án þess að rækta bakteríurnar. Áður óþekkt hverabakteríutegund, sem virðist bundin við Ísland, fannst með slíkum aðferðum.

Í framhaldinu kviknaði áhugi á að reyna að einangra og rækta þessa séríslensku tegund. Styrkir fengust úr Rannsóknasjóði og frá Orkustofnun og voru tekin sýni úr hvernum á Torfajökulssvæðinu síðsumars og staðfest að Thermus islandicus væri þar að finna. Ræktunartilraunir á mismunandi ætum, við mismunandi hitastig, sýrustig og súrefnisstyrk hafa nú skilað árangri í lífvænlegum stofni sem er nú rannsakaður nánar. Snædís Huld Björnsdóttir starfsmaður Matís hefur unnið að þessu verkefni, en Sólveig Pétursdóttir er verkefnisstjóri.

Matís segir, að ýmsar hverabakteríutegundir hafi gefið af sér verðmæt DNA ensím, sem notuð séu við rannsóknir víða um heim.

Vefur Matís

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert