Flytja þurfti karlmann á sjúkrahúss sem festist á milli stafs og hurðar við Hafnarfjarðarhöfn um kl. 14:30 í dag. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu slasaðist maðurinn á mjöðm þegar hann klemmdist á milli hurðar flotkvíar og hurðastoppara. Hurðin sjálf er fleiri fermetrar að stærð og vegur mörg tonn.