Eldsneytisverð hefur hækkað um 1 krónu lítrinn í sjálfsafgreiðslu stóru olíufélaganna. Lítri af bensíni kostar nú að jafnaði 130,70 krónur og lítri af dísilolíu 131,90 krónur. Hjá Atlantsolíu kostar bensínlítrinn 128,70 krónur og dísilolíulítri 130,20 krónur.