Upplýsingar um svifryksmagn í lofti í Reykjavík birtast nú á vefsíðu mbl.is í samvinnu við Reykjavíkurborg. Vinstra megin á veðursíðu vefjarins má sjá upplýsingar um svifryk í borginni þá stundina og að meðaltali frá miðnætti sama dag. Veðursíðuna má nálgast með því að smella á Veður í valmynd efst á forsíðu mbl.is eða tengilinn Veður á mbl.is þar sem veðurspá er birt um miðbik forsíðunnar.