Vextir Sparisjóðanna hækka

Vextir á svonefndum hattalánum Sparisjóðanna, sem eru hluti af lánasamstarfi Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðanna, hafa hækkað um 0,20%. Vextir af slíkum lánum með uppgreiðsluþóknun hækkuðu í 6,45% úr 6,25% og lán án uppgreiðsluþóknunar hækkuðu í 6,75% úr 6,55%. Hækkunin hefur þegar tekið gildi, að því er kemur fram á vef Íbúðalánasjóðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert