Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu, hlaut Bjarkarlaufið, nýjan viðurkenningargrip, sem veittur var í fyrsta skipti í dag á degi íslenskrar tónlistar. Er Bjarkarlaufið veitt þeim sem hefur unnið vel í þágu tónlistarinnar en Árni fékk viðurkenninguna fyrir umfjöllun sína um íslenska tónlist.