Sjö ökumenn voru stöðvaðir á Reykjanesbraut fyrir of hraðan akstur í dag. Sá er ók hraðast var á 129 km hraða. Þá var einn ökumaður kærður fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Tveir ökumenn voru í nótt kærðir fyrir meinta ölvun við akstur og eitt líkamsárásarmál kom upp við einn skemmtistaða Reykjanesbæjar. Þá gistu tvö fangaklefa lögreglunnar í nótt vegna ölvunar.