Ný þyrla Landhelgisgæslunnar komin til landsins

Nýja þyrlan, Steinríkur
Nýja þyrlan, Steinríkur

Í dag lenti ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar, LN-OBX, í Reykjavík eftir flug frá Förde í Noregi. Áhöfnin tók við vélinni í Förde sl. miðvikudag og gerði nauðsynlegar flugprófanir. Ráðgert hafði verið að hefja ferðina sl. fimmtudag en brottför frestaðist vegna veðurs þar sem vindur fór í 50 m/s hafinu milli Noregs og Færeyja.

Ferðin hófst því í gær, föstudag. Snjókoma tafði brottför frá Förde en áhöfninni tókst að komast af stað og millilenti á Hjaltlandseyjum á leið sinni til Færeyja. Í Færeyjum tók Eiður Guðnason, ræðismaður Íslands höfðinglega á móti áhöfninni sem hafði næturdvöl í Þórshöfn áður en haldið var áleiðis til Íslands. Í dag var góður meðbyr og því tókst að fljúga til Reykjavíkur í einum áfanga og lenti þyrlan á Reykjavíkurflugvelli um kl. 15:30.

Þessi nýja vél er af gerðinni Super Puma AS332c en er flugdeild LHG vel kunn þar sem þessi sama vél var í leigu hjá Landhelgisgæslunni síðastliðinn vetur og gengur þar undir nafninu Steinríkur. Hún tekur við hlutverki TF-SIF, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert