Fagna frumkvæði viðskiptaráðherra

Ungir jafnaðarmenn fagna frumkvæði viðskiptaráðherra um endurskoðun á reglum um tollfríðindi og þeim upphæðum á vörum sem fólk má flytja með sér til landsins.

„Þessi aðflutningsgjöld eru barn síns tíma og óskiljanlegt að fólk megi ekki koma með vörur fyrir meira en 46 þúsund krónur án þess að borga toll og gjöld af því.

Ungir jafnaðarmenn hvetja til þess að viðskiptaráðherra beiti sér fyrir því að upphæðirnar verði hækkaðar umtalsvert eða hreinlega felldar niður. Nýtum tíma tollvarða og peninga skattborgaranna í eftirlit sem skiptir máli, svo sem baráttu gegn innflutningi fíkniefna," samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert