Farþegum í strætó fjölgaði undanfarna 12 mánuði um 13,65%, eða úr 711.176 í 808.242 sem er 97.066 fleiri farþegar en árið á undan. Árið áður hafði farþegum fjölgað um 10,52% eða um 67.718 farþega.
Í tilkynningu frá Strætó kemur fram að fjölgunin nær til allra leiða í leiðarkerfi fyrirtækisins.