Hreiðar Árni Magnússon hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hárgreiðslustofunnar Salon VEH af Elsu Haraldsdóttur en hann hefur keypt stofuna af Elsu ásamt Jóhanni Tómasi Sigurðssyni.
Hreiðar og Jóhann stofnuðu á síðasta ári, ásamt Elsu, hárgreiðslustofuna LOFT REDKEN í Kaupmannahöfn.
Í tilkynningu kemur fram að LOFT REDKEN Salon hefur farið langt framúr vonum og velta stofunnar hefur þrefaldast frá ársbyrjun.