Ungir jafnaðarmenn hafa þungar áhyggjur af ástandi á húsnæðismarkaði

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, lýsa yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem ríkir nú á húsnæðismarkaðnum eftir nýjustu vaxtahækkanir bankanna.

„Staðan nú er enn fjandsamlegri en áður gagnvart ungu fólki sem er að reyna að koma þaki yfir höfuðið og í raun orðið erfitt að sjá hvernig eignalítið ungt fólk á yfir höfuð að taka fyrstu skrefin inn á húsnæðismarkaðinn. Hátt fasteignaverð, háir vextir og himinhá húsaleiga eru allt þættir sem leggja stein í götu þess fólks. Ungir jafnaðarmenn harma það að afleiðingar hagstjórnarmistaka fyrri ríkisstjórnar skuli nú leggjast þyngst á herðar þess fólks sem minnst má við því og treysta því að núverandi ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks grípi til tafarlausra aðgerða í þessum efnum og rétti af hið ósanngjarna hlutskipti ungs fólks.

Að lokum gagnrýna Ungir jafnaðarmenn harðlega þá ákvörðun ákveðinna banka að banna íbúðarkaupendum að yfirtaka eldri lán á hagstæðari vöxtum og hvetja þá ásamt öðrum lánastofnunum sem gætu verið að hugsa í sömu átt, til að sjá að sér," samkvæmt ályktun .

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert