Ók á kyrrstæða bifreið og stakk af

Ökumaður stakk af eftir að hann varð valdur að árekstri á Selfossi um kl. 23:30 í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var ekið á kyrrstæða og mannlausa bifreið með þeim afleiðingum að hún þeyttist út á miðjan veg og glerbrot lágu um víð og dreif. Sjónarvottur varð vitni að atvikinu og hafði samband við lögreglu sem hafði hendur í hári ökumannsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert