Hallur Páll Jónsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar til eins árs frá 1. nóvember að telja. Fráfarandi mannauðsstjóri Birgi Björn Sigurjónsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Reykjavíkurborgar til eins árs frá sama tíma.
Hallur Páll hefur undanfarin tvö ár verið deildarstjóri ráðgjafadeildar mannauðsskrifstofu Reykjavíkurborgar. Áður var hann starfsmannastjóri Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar um 11 ára skeið. Hallur Páll hefur lokið BA-gráðu í heimspeki og sálfræði og meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.