Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir liðsinni almennings vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Lögreglan vill vita hvort einhver þekki manninn á meðfylgjandi mynd en hann er talinn tengjast málinu. Ekki kemur fram um hvaða mál er að ræða.
Maðurinn er 165 til 170 cm á hæð, grannur, dökkhærður, stuttklipptur með þunnt yfirvaraskegg og pinna í tungunni. Hann er talinn af erlendu bergi brotinn.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru vinsamlega beðnir um að hringja í lögregluna í síma 4441000.