Kona lést í Reykjavík á fimmtudagsmorgun eftir að hún sprautaði sig með rítalínu í æð. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag.
Konan, sem var 35 ára, missti meðvitund og kallaði fólk sem var með henni í íbúð í miðborginni eftir aðstoð sjúkraliðs.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var hópur fólks í íbúðinni og hafði áfengi og fíkniefni um hönd. Átta voru á staðnum, auk látnu konunnar, þegar lögreglu bar að.