Maður sem mun hafa veitt vinnufélaga sínum áverka með hnífi í gærkvöldi gaf sig fram við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegið í dag. Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús, en hafði ekki hlotið jafn alvarlega áverka og í fyrstu var talið, þar sem mikið blæddi úr sárum mannsins.
Mennirnir tveir eru starfsmenn við Hellisheiðarvirkjun og átti atburðurinn sér stað þar. Munu báðir mennirnir hafa verið ölvaðir.