Þrír menn vopnaði kylfu og exi frömdu rán í söluturni í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglu.
Þeir komu inn í Sunnubúðina við Mávahlíð og réðust að starfsmanni, rændu peningum og tóbaki og hlupu síðan á brott.
Lögreglu barst tilkynning um ránið klukkan 11.20, en er hún kom á vettvang voru mennirnir á bak og burt. Þeirra er nú leitað.