Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar leggst eindregið gegn Bitruvirkjun, fyrirhugaða gufuaflsvirkjun á Hellisheiði. Segist bæjarstjórnin telja afar óábyrgt af sveitarfélaginu Ölfusi og Orkuveitu Reykjavíkur, að halda áfram með framkvæmd þar sem jafn mikil óvissa ríki um áhrif á loft, vatnslindir og náttúru og hér um ræði.
Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti ályktun á fundi í síðustu viku þar sem lagst er eindregið gegn áformum um byggingu Bitruvirkjunar. Segist bæjarstjórnin telja rétt, að leitað verði annarra leiða til orkuöflunar áður en ráðist sé í framkvæmdir á jafn viðkvæmu svæði.
„Svæðið norður af Hveragerði býr yfir einstakri fegurð og í raun er það ein best varðveitta náttúruperlan í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Svæðið sem er á náttúruminjaskrá er vinsæll áfangastaður erlendra sem innlendra ferðamanna og hafa vinsældir þess aukist stöðugt undanfarin ár. Allar framkvæmdir á svæðinu draga úr gildi þess sem útivistarsvæðis fyrir þá sem vilja njóta óspilltrar náttúru. Í frummatsskýrslu framkvæmdaaðila kemur fram að áhrif vegna framkvæmdarinnar geta orðið veruleg í Hveragerði sem er næsti þéttbýlisstaður við virkjunina í aðeins 4,5 km fjarlægð," segir m.a. í ályktuninni.