Skrifað undir samning vegna fyrirhugaðar bjórframleiðslu í Eyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Brynjar Gauti

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli eigenda fyrirhugaðrar bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum og bruggverksmiðjunnar SALM í Austurríki. Það voru þeir Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir Nielsen, forsvarsmenn verksmiðjunnar og Wellidte, einn af eigendum og forstjóri SALM í Austurríki sem skrifuðu undir samninginn.

Björgvin Þór sagði í samtali við www.sudurland.is að hann væri í senn stoltur og svolítið stressaður. „Þetta er mikið verkefni sem við erum að taka að okkur því ekki einungis munum við framleiða bjórinn Volcano heldur verðum við líka umboðsaðilar SALM á Íslandi. Svo er möguleiki á að við munum fara í útflutning á Volcano bjór í framhaldinu,“ sagði Björgvin.

Eins og greint hefur verið frá er stefnan sett á að framleiðslan hefjist þann 1. júlí 2008.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert