Hálfs árs fangelsi fyrir fjölda afbrota

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tæplega þrítugan karlmann í hálfs árs fangelsi fyrir fjölda afbrota, þar á meðal hylmingu, þjófnaði, fíkniefnabrot og hótanir. Maðurinn hefur oft áður verið dæmdur fyrir svipuð brot á undanförnum áratug, þar á meðal í tveggja ára fangelsi í maí í vor.

Fram kemur að maðurinn hafi neitað öllum sökum við lögreglurannsóknina en játaði greiðlega á sig öll brotin fyrir dómi og er það virt honum til refsilækkunar. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í septemberlok.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert