Mestur munur á örbylgjupítsu

Um 800 kr. eða 16% munur mældist á ódýrustu og dýrustu vörukörfunni í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í verslunum 10-11, 11-11 og SamkaupStrax sl. þriðjudag. Ódýrasta karfan var í verslun SamkaupStrax, 8.560 kr., en sú dýrasta í verslun 10-11 á 9.360 kr. Af einstökum vörutegundum reyndist minnstur munur milli verslananna á mjólk og kjötmeti og oftast mældist munurinn á hæsta og lægsta verði innan við 20%. Mestur var hann þó á frosinni örbylgjupítsu og fór þar upp í 46%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert