Stjórnarfundi í Orkuveitu Reykjavíkur, sem átti að verða á morgun, var í dag frestað um viku. Ekki var vitað um ástæðuna en Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, segist telja víst að ekki hafi enn náðst samstaða um stefnuna í málum OR innan nýja meirihlutans.