Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að húsi í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi en tilkynnandi óttaðist mjög um nágranna sína og taldi að eitthvað mikið gengi á í íbúð þeirra. Brugðist var skjótt við en þegar bankað var hjá fólkinu, sem óttast var um, kom kona á þrítugsaldri til dyra og furðaði sig mjög á þessari heimsókn lögreglunnar. Konan reyndist einsömul heima og ekki var að sjá að neinn hefði lagt á hana hendur.
Við frekari eftirgrennslan kom hins vegar í ljós að konan hafði verið að horfa á hryllingsmynd og sleppt sér gjörsamlega yfir myndinni sem var víst ansi magnþrungin, að sögn lögreglu. Eftir þessar upplýsingar kvöddu lögreglumennirnir konuna, sem lofaði að reyna að hemja sig.