Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 18 ára pilt í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela leigubíl í Mjódd í apríl á þessu ári og aka honum um götur borgarinnar. Bíllinn fannst tveimur dögum síðar í Vatnsendahvarfi eftir ábendingu piltsins.
Pilturinn rauf með þessu sex mánaða skilorðsbundinn dóm, sem hann hlaut á síðasta ári fyrir fíkniefnabrot á síðasta ári.