Piltar sem reyndu að ræna pítsustað ófundnir

Enn hefur ekki tekist að hafa uppi á piltum sem gerðu tilraun til vopnaðs ráns á pítsustað í Spönginni á föstudagskvöldið. Að sögn lögreglu er málið í rannsókn. Þrír piltar komu grímuklæddir inn á staðinn bakdyramegin á föstudagskvöldið og voru tveir vopnaðir hnífum og einn einhvers konar skotvopni, sem talið er líklegt að hafi verið loftbyssa eða leikfang. Þeir flýðu af vettvangi þegar starfsfólk neitaði að afhenda þeim peninga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert