Gert er ráð fyrir norðaustan og austan 3-8 metrum á sekúndu á landinu í dag, skýjuðu með köflum og víða verður talsvert frost. Vaxandi austanátt og fer að snjóa sunnan- og vestanlands með morgninum.
Upp úr hádegi verður suðaustan 13-18 m/s og slydda og rigning vestanlands og snjókoma norðaustantil í kvöld. Suðaustan 10-18 m/s verður seint í nótt og úrkoma um allt land.
Á morgun verður suðvestan 8-15 m/s eftir hádegi og skúrir sunnan- og vestanlands en rofar til austanlands. Hiti verður 1 til 5 stig.