Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að gert sé ráð fyrir því að ferðum til Lundúna verði fjölgað hjá félaginu næstkomandi vor í ljósi þeirra tíðinda að British Airways ætla að hætta flugi til Íslands.
Guðjón segir þetta hafa verið rætt en að engar formlegar ákvarðanir hafi þó verið teknar um þetta eða hver mörgum ferðum verði bætt við.
Iceland Express tilkynnti í dag, að ferðum til Lundúna yrði fjölfað frá og með febrúar á næsta ári.