Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nótt afskipti af þremur piltum sem höfðu brotið flöskur í Hlíðunum. Þegar leitað var eftir skýringum á athæfi þeirra var fátt um svör en á þeim mátti helst skilja að þetta hefði verið gert í gamni.
Lögreglan skammaði piltana og þeir voru síðan látnir fjarlægja öll glerbrotin eftir sig. Þegar allt var orðið hreint á ný var þeim leyft að halda ferð sinni áfram.
Um hádegisbil í gær var unglingspiltur staðinn að veggjakroti í strætisvagni í Háaleitishverfi og var lagt hald á tvo úðabrúsa og tússpenna sem hann var með í fórum sínum. Pilturinn var líka með myndavél meðferðis og hafði tekið myndir af öðru veggjakroti.
Síðdegis í gær hafði lögreglan afskipti af nokkrum krökkum í Kópavogi sem voru að kasta snjóboltum í bíla. Litlu mátti muna að einn ökumannanna sem fyrir þessu varð missti stjórn á bílnum sínum en framrúðan í bíl hans brotnaði og því er um nokkurt tjón að ræða. Haft var samband við foreldra krakkana og farið yfir málið sem lögregla segist líta alvarlegum augum.