Axel líklega í mánaðarstopp

mbl.is/Skapti

Vinna hófst við það á Akureyri skömmu fyrir klukkan þrjú í dag að afferma frystiskipið Axel sem laskaðist er það sigldi á sker í Hornafjarðarós á þriðjudag.

Ari Axel Jónsson, eigandi Dregg Shipping sem á skipið og gerir það út , sagði við blaðamann Morgunblaðsins á staðnum að affermingu muni líklega ljúka á morgun og að því loknu verði skipið tekið í slipp. Þá sagði hann að gert væri ráð fyrir að viðgerð á skipinu taki um þrjár vikur og að því muni óhappið líklega valda mánaðarstoppi á ferðum skipsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert