Samkvæmt heimildum www.eyjar.net kom upp
bilun um borð í Herjólfi og þarf skipið að fara í slipp í Hafnarfirði næsta
þriðjudag. Mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar á þriðjudaginn og halda svo til
Hafnarfjarðar þar báturinn fer í viðgerð.
Áætlað er að viðgerðin taki
minnst 2 daga og er vonast til að Herjólfur fari frá Þorlákshöfn á hádegi
föstudaginn 7.desember.